Kveiktu eld í mosku Palestínumanna
Ísraelskir landnemar vanhelga moskur Palestínumanna. „Lítil sprenging varð sem olli eldsvoða inni í moskubyggingunni,“ sagði vitni, sem lýsti skyndilegri árás á mosku á hernumdu svæði á Vesturbakkanum. Ofbeldi gegn Palestínumönnum er gjarna án afleiðinga.
Ísraelskir landnemar reyndu að kveikja í mosku í hernumda hluta Vesturbakkans, að sögn Palestínumanna. Þetta er nýjasta árásin af þessu tagi á svæðinu.
Palestínska trúmálaráðuneytið sagði að „hópur landnema hefði reynt að kveikja í hlutum Nur al-Din Zanki-moskunnar“ í Bazzaryah, nærri Nablus, og lýsti atvikinu sem „glæpsamlegri árás“.
Ljósmyndir og myndskeið AFP frá Bazzaryah sýna svört brunaför í kringum glugga á herbergi sem tilheyrir moskubyggingunni, auk skilaboða með hótunum á hebresku sem skrifuð voru á útveggi moskunnar.
Réðust skyndilega til atlögu
„Um klukkan 2:45 um nóttina réðust landnemarnir skyndilega til atlögu. Lítil sprenging varð sem olli eldsvoða inni í moskubyggingunni,“ sagði Majed Nasr, sem býr í nágrenninu. Hann bætti við að landnemarnir hefðu síðan flúið af vettvangi.
„Okkur tókst að ráða niðurlögum eldsins áður en ástandið versnaði og eldurinn náði upp í meginhluta byggingarinnar,“ sagði hann við AFP.
Ísraelski herinn svaraði ekki þegar í stað beiðni AFP um viðbrögð …