Í norskum fjölmiðlum kemur fram að prinsessan hafi dvalið á sjúkrahúsinu í um þrjá tíma. Hún hafi síðan gengið út ásamt eiginmanni sínum Hákoni með súrefnistank sér við hlið.
Sjúkdómur hennar kallast lungnatrefjun og var greint frá því í desember að læknar hennar hefðu skorið úr um það að hún þyrfti á lungnaígræðslu að halda vegna sjúkdómsins. Er hún á biðlista.
NRK segir að ekki sé vitað nákvæmlega hvers vegna prinsessan hafi leitað á sjúkrahús í dag, þó ljóst sé að það sé tengt veikindum hennar. Hákon sagði við fjölmiðla fyrr í vikunni að það hefði ekkert annað komið til greina en að stytta opinbera för hans til Japans.
„Ég er að fara heim þar sem krónprinsessan er veik, svo ég verð að stytta ferðina. Ég bið alla þá sem ég ætlaði að heimsækja síðasta daginn afsökunar,“ sagði Hákon.