Álaborg hafði betur gegn Skanderborg, 30:29, í fyrsta leik liðanna í úrslitum danska handboltans í dag.
Næsti leikur liðanna fer fram á fimmtudaginn næstkomandi en til þess að verða danskur meistari þarf að vinna tvo leiki.
Landsliðsmaðurinn Kristján Örn Kristjánsson átti stórkostlegan leik fyrir Skanderborg en hann skoraði sjö mörk.
Í liði Álaborgar var Juri Knorr markahæstur með átta mörk.