Kristinn V. Jóhannsson er látinn

Kristinn V. Jóhannsson, fyrrverandi forseti bæjarstjórnar Neskaupstaðar og stjórnarformaður Síldarvinnslunnar, er látinn, 91 árs að aldri. Hann lést 3. júlí síðastliðinn. Austurfrétt greindi frá andlátinu.
Kristinn fæddist í Neskaupstað árið 1934. Hann starfaði lengst af sem kennari og skólastjóri Iðnskóla Austurlands áður en hann tók við sem framkvæmdastjóri Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað (SÚN), þar sem hann starfaði til ársins 2005.
Hann sat í stjórn Síldarvinnslunnar í rúma tvo áratugi, þar af sem stjórnarformaður frá 1984 til 2003. Þá sat hann í bæjarstjórn Neskaupstaðar í 24 ár og var forseti bæjarstjórnar frá 1974 til 1990.
Kristinn lét einnig mikið til sín taka í íþróttalífinu og var meðal annars valinn í fyrsta landslið Íslands í körfuknattleik árið 1959. Hann bjó í Neskaupstað nær alla ævi en flutti til Reykjavíkur árið 2024.