Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
Kröfur upp á 981 milljón eru undir í beiðni um nauðungarsölu á lóðum félagsins Render Centium ehf. í Mosfellsbæ. Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, og faðir hans eiga félagið sem átti að byggja þjónustuíbúðir fyrir aldraða á lóðinni en hefur rift samningnum. Málið varpar ljósi á byggingarverkefni þingmannsins víða um land en hann segist sína aðkomu ekki tímafreka.
Kröfuhafar hafa farið fram á nauðungarsölu á þremur lóðum í Mosfellsbæ í eigu félagins Render Centium. Kröfurnar hljóða upp á 981.467.761 krónur.
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, er annar eigenda félagins ásamt föður sínum og kom samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar að kaupunum á lóðunum. Hann hefur ekki skráð þær í hagsmunaskrá Alþingis eins og kveðið er á um í reglum. Málið varpar einnig ljósi á ýmis byggingaverkefni sem fjölskyldufyrirtækið hefur komið að samhliða þingsetu, í Mosfellsbæ, á Selfossi og víðar.
Lóðirnar umræddu eru við Bjarkarholt 32 og 34 í Mosfellsbæ, beint á móti Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ. Bergþór og faðir hans keyptu félagið Render Centium með tilheyrandi lóðum árið 2023 í gegnum félag sitt Byggingalausnir ehf. Á lóðunum stóðu áður hús sem hafa verið rifin.
Samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar tóku þeir yfir lán frá Arion banka og fengu seljandalán frá fyrri eiganda lóðarinnar. Hljóðuðu skuldirnar upp á hundruð milljóna króna.
Samkomulag við Mosfellsbæ …