Íbúðasamtök miðborgar Reykjavíkur (ÍMR) skora á borgaryfirvöld að grípa til aðgerða vegna innbrotafaraldursins sem nú geisar í borginni.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum en 61 tilkynning um innbrot hefur borist til lögreglu frá mánaðamótum.
Af þeim 61 innbroti sem tilkynnt hafa verið frá mánaðamótum hafa 45 verið á varðsvæði lögreglustöðvar 1, sem sinnir meðal annars miðborginni, Vesturbænum og Seltjarnarnesi. Þar af hafa 20 innbrot verið framin í miðborginni.
Verðum að bregðast við
Samkvæmt tilkynningu ÍMR er um að ræða innbrot jafnt á heimili sem og fyrirtæki og virðist sem smærri fyrirtæki séu frekar valin.
Innbrotsþjófarnir hafa stolið bæði fjármunum og hlutum og jafnframt ollið skemmdum á t.d. hurðum, gluggum og húsgögnum.
„Mikilvægt er að borgaryfirvöld bregðist við í samráði við lögreglu, ÍMR, íbúa og fyrirtækjaeigendur. Virkja þarf nágrannavörslu, tilkynna öll mál til lögreglu sem þarf að bregðast við með vettvangsheimsókn, og brýna fyrir íbúum og fyrirtækjaeigendum að bæta öryggi eins og kostur er við heimili sín og fyrirtæki,“ segir að lokum í tilkynningunnni.