Þó að greiðfært sé um flestalla vegi á láglendi vekur Vegagerðin athygli á því að hálka eða hálkublettir séu á mörgum leiðum. Flughálka er á Mýrdalssandi og krapi á Sandskeiði, Suðurstrandarvegi og Krýsuvíkurvegi.
Suðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og stöku skúrir eða slydduél, en bjart með köflum á Norðurlandi. Á spákorti Veðurstofunnar má sjá að hitatölurnar eru flestar bláar í dag, sem sýnir að hiti er um og undir frostmarki.
Norðlægari á morgun og skúrir eða slydduél, en úrkomulítið á Suður- og Suðvesturlandi.
Hiti 1 til 7 stig að deginum, en víða næturfrost. Á sunnudag verður talsverð úrkoma um land allt.
„Lægð yfir Bretlandi á laugardagskvöldið veldur norðaustlægri átt, 8-15 m/s, hjá okkur á sunnudag með rigningu eða snjókomu, fyrst austantil, en lengst af þurrt vestast á landinu. Hiti 1 til 5 stig yfir daginn,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag (fyrsti vetrardagur):
Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og stöku él eða skúrir, en þurrt að kalla suðvestantil. Hiti 0 til 4 stig yfir daginn.
Á sunnudag:
Norðaustlæg átt 8-15. Rigning eða snjókoma norðan- og austanlands, en úrkomuminna vestast framan af degi. Hiti í kringum frostmark.
Á mánudag:
Norðlæg eða breytileg átt 5-10 og rigning eða slydda, en styttir upp sunnan heiða. Hiti 1 til 6 stig að deginum.
Á þriðjudag:
Norðlæg átt og rigning eða slydda, einkum norðan- og austanlands, en úrkomulítið suðvestanlands framan af degi. Hiti breytist lítið.
Á miðvikudag:
Suðlæg eða breytileg átt með skúrum eða éljum. Hiti 0 til 7 stig, hlýjast syðst.
Á fimmtudag:
Útlit fyrir ákveðna sunnanátt með rigningu. Hlýnar í veðri.