Kjörstöðum var lokað nú klukkan 22. Innan skamms hefst talning atkvæða.
Kosningavakan í sjónvarpi hefst klukkan 22:20.
Margir velta eflaust fyrir sér hvenær niðurstaðan verður orðin nógu afgerandi til þess að hægt sé að slá því föstu að úrslitin séu ráðin.
Hafsteinn Einarsson, doktor í stjórnmálafræði og sérfræðingur kosningavökunnar, er höfundur spálíkans sem ætlað er að veita innsýn í það.
Hér að neðan má sjá líkanið. Þar er hægt að slá inn talin atkvæði í hverju kjördæmi fyrir sig. Líkanið birtir þá spá um líklega niðurstöðu.
Þangað til fyrstu tölur birtast má leika sér að því að prófa sig áfram.
Í þjóðaratkvæðagreiðslu skipta kjördæmi landsins ekki beinlínis máli fyrir útkomuna. Niðurstaðan ræðst bara af heildarfjölda atkvæða á landsvísu. En atkvæði eru þó talin eftir kjördæmum, á einum stað í hverju kjördæmi.
Við eigum von á fyrstu tölum úr Suðurkjördæmi strax á ellefta tímanum, en tölum frá öðrum kjördæmum upp úr miðnætti.
Síðan tekur biðin við. Síðustu tölur gætu borist úr Norðvestur- og Norðausturkjördæmi klukkan sjö í fyrramálið.
Kjörsókn virðist vera með besta móti og útlit fyrir að hún sé meiri en í þjóðaratkvæðagreiðslum síðustu ára. Í þeim þremur þjóðaratkvæðagreiðslum sem hafa verið haldnar á lýðveldistímanum, fyrir þessa, var kjörsókn á bilinu 49–75%.
Kjörsóknin í dag virðist hins vegar vera sambærileg við kjörsókn í alþingiskosningunum 2024, þegar hún var 80,2%. Hvort hún reynist meiri verður að koma í ljós.
Hér að neðan eru nýjustu tölur um kjörsókn í öllum kjördæmum. Í sviga er samanburður við sama tíma árið 2024 (plús þýðir meiri kjörsókn, en mínus minni kjörsókn)
Reykjavík norður - kl. 21: 56,81% (-4%)
Reykjavík suður kl. 21 – 56,77% (-5,91%)
Suðvestur kl. 21 – 54,5% (-7,3%)
Norðaustur - Nýlegar tölur ekki fengist
Norðvestur - kl. 17:30 – 53,79% (-12,66%)
Suður - kl. 20 59,42% (-0,42%)
Vert er að geta þess að tölurnar hér að ofan sýna aðeins kjörsókn á kjördag. Í fréttum í gærkvöld kom fram að 23% fólks á kjörskrá hefði þegar greitt atkvæði utan kjörfundar, og enn áttu atkvæði eftir að bætast við. Til samanburðar var hlutfallið 20,9% í þingkosningunum 2024. Tölur um kjörsókn utan kjörfundar eru ekki greindar eftir kjördæmum.
Gott kvöld,
Velkomin í beina fréttavakt frá kosningavöku RÚV. Nú er klukkustund í að kjörstöðum verði lokað – á slaginu 22. Kosningavaka í sjónvarpi hefst klukkan 22:20.
Hér á vefnum fylgjumst við með gangi mála, greinum frá nýjustu tölum um leið og þær berast, greinum gögnin og leitum viðbragða.
Við fylgjum síðasta atkvæði í hús.