Kjarnaborunum vegna rannsóknar á fýsileika lagningar Eyjaganga á Eiðinu í Vestmannaeyjum er lokið. Þær hófust í apríl. Fréttamiðillinn Tígull greinir frá þessu og segir góðan gang hafa verið í rannsókninni og mikilvægum áfanga náð.
Kjarnaborunin hafi skilað dýrmætri þekkingu á jarðlögunum sem nýtast muni við undirbúning og hönnun ganganna. Styrkleiki bergsins er rannsakaður og eins hve mikið vatn lekur í gegnum það.
Starfsmenn Ræktunarsambands Flóa og Skeiða koma kjarnabornum, sem kallaður er Karl Prins, fyrir á Landeyjasandi við bæinn Kross, þar sem rannsóknum verður fram haldið. Heildarkostnaðurinn við borunina nemur um tvö hundruð milljónum króna.
Það fjármagn fæst frá sveitarfélögum í Vestmannaeyjum og á Suðurlandi ásamt fyrirtækjum um land allt, samkvæmt upplýsingum Haraldar Pálssonar, framkvæmdastjóra Eyjaganga ehf.
Haraldur sagði í apríl niðurstöður eiga að fást fyrir árslok, sem gegna lykilhlutverki við mat á hversu raunhæf veglagningin er. Þá verði hægt að ákveða hvort frekari rannsóknir séu forsvaranlegar.