Kista Haraldar Noregskonungs var í dag flutt í kapellu konungshallarinnar, þar sem almenningur getur komið og vottað virðingu sína. Hákon konungur, Marta Lovísa prinsessa og börn þeirra báru kistuna. Drottningarnar Sonja og Mette Marit gengu síðan hönd í hönd á eftir. Marius Borg Høiby stjúpsonur Hákons fékk leyfi til að taka þátt í dag. Hann er í stofufangelsi eftir að hafa verið sakfelldur fyrir tvær nauðganir og 32 önnur brot.
Haraldur verður jarðsunginn á miðvikudag í næstu viku. Kapellan verður opin fyrir almenning frá kl. 10-18 þangað til daginn fyrir útförina.