Kínversk stjórnvöld hafa meinað fjórum nýsjálenskum þingmönnum að ferðast til Kína í eitt ár. Þingmennirnir fjórir, sem koma úr ólíkum stjórnmálaflokkum, heimsóttu Taívan í maí sem hluti af sendinefnd.
Kína gerir enn tilkall til eyjunnar Taívan. Formlega líta stjórnvöld í flestum ríkjum heims á Taívan sem hluta af Kína.
Talsmaður utanríkismálaráðuneytis Nýja-Sjálands segir það vera afstöðu þarlendra stjórnvalda. Heimsóknin sé ekki á skjön við hana. Winston Peters, utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, hefur beðið sendifulltrúa landsins í Kína að taka málið upp við kínverska embættismenn í Beijing og í Wellington.
Í frétt nýsjálenska ríkisútvarpsins segir að kínverska sendiráðið í Nýja-Sjálandi hafi sagt að ferðabanninu yrði aflétt ef þingmennirnir biðjast afsökunar.
Einn þingmannanna fjögurra, Laura McClure, segir það ekki ljóst fyrir hvað þau eigi að biðjast afsökunar. „Ef það er aðeins fyrir það að hafa ferðast til Taívan, þá ætla ég ekki að gera það,“ segir hún.