Bandaríski tónlistarmaðurinn D4vd, eða David Anthony Burke, sem er ákærður fyrir morðið á hinni 14 ára Celeste Rivas Hernandez, er sagður hafa keypt líkpoka, keðjusög og skóflur aðeins nokkrum dögum eftir andlát stúlkunnar.
Lík Hernandez fannst sundurlimað í skotti yfirgefins bíls sem skráður var á listamanninn. Hennar hafði þá verið saknað síðan árið áður. Burke hafði reynt að farga bílnum en vegna mikillar lyktar sem stafaði frá honum komst lögregla á snoðir um Hernandez.
Mál hins 21 árs Burke er til meðferðar hjá saksóknurum í Los Angeles í Kaliforníuríki í vikunni. Hann sætir ákæru fyrir að hafa myrt stúlkuna, beitt hana kynferðislegu ofbeldi og fyrir að limlesta hana.
Notaði eigið kort til þess að kaupa keðjusög, líkpoka og skóflu
Í rétti kom fram að Burke hefði notast við dulnefni er hann keypti hlutina á netinu. Hins vegar var hans eigið greiðslukort notað til þess að greiða fyrir pöntunina sem síðar var send á heimili hans í Hollywood.
Samkvæmt upplýsingum frá saksóknara segir að Burke hafi myrt stúlkuna eftir að hún hótaði að opinbera samband þeirra. Hernandez kynntist Burke á netinu þegar hún var aðeins 11 ára, hún var þá aðdáandi listamannsins og síðar áttu þau í kynferðislegu sambandi. Áður hafði komið fram að Burke hafi myrt stúlkuna til þess að hylma yfir kynferðisbrot sín sem hún átti að hafa orðið vitni að.
Lögmenn D4vd hafa fyrir hans hönd lýst yfir sakleysi hans.