„Núna er loksins búið að loka þessu ömurlega máli sem er búið að hanga í limbói í 30 ár,“ segir Arnar Eggert Thoroddsen tónlistarfræðingur um niðurstöðu í morðmáli rapparans Tupac Shakur. Hann var myrtur í Las Vegas árið 1996.
Fyrrum meðlimur í gengi í Los Angeles, Duane „Keffe D“ Davis, var fundinn sekur um að hafa myrt rapparann Tupac Shakur fyrir dómi í Las Vegas í gær. Það tók kviðdóminn aðeins nokkrar klukkustundir að komast að þeirri niðurstöðu. Arnar Eggert telur að með þessu fáist ákveðin lokun fyrir fjölskyldu og aðdáendur Tupac í einu þekktasta óleysta morðmáli í Bandaríkjunum.
Kerfisbundið kynþáttahatur hafi spilað þátt
Aðspurður hvers vegna svo langan tíma tók að fá niðurstöðu í málinu segir Arnar Eggert að kynþáttahatri sé helst um að kenna.
„Ástæðan er fyrst og síðast kerfisbundinn rasismi í Bandaríkjunum, segir Arnar Eggert.
„Ef þetta eru svartir, þá veltist þetta um í kerfinu,“ segir Arnar og minnist þess að Tupac hafi sjálfur gagnrýnt slíka meðferð á svörtum Bandaríkjamönnum í textum sínum.
„Þannig að það er svolítið kaldhæðnislegt að hans líf verður eins og tónlistin sem hann var að gera, líf og list mætast,“ segir Arnar
Tupac Shakur var einn vinsælasti rappari tíunda áratugarins og segir Arnar Egger að þegar hann deyr 25 ára gamall hafi stjarna hans skynið skært.
„Hann verður svona íkon eins og Kurt Cobain eða Jim Morrison,“ segir Arnar Eggert.