Katrín Júlíusdóttir fyrrverandi varaformaður Samfylkingarinnar hyggst ekki bjóða sig fram til embættisins að nýju. Hún hafnar því að Dagur B. Eggertsson sé aukaleikari hjá flokknum þrátt fyrir fullyrðingar Kristrúnar Frostadóttur, formanns hans um annað.
Hún segist ætla að einbeita sér að innra starfi flokksins hér eftir og stefni ekki á frekari frama í stjórnmálum. Þetta upplýsir hún í nýjasta þætti Spursmála.
Margir frambærilegir oddvitar
Segir hún margt öflugt fólk í framlínu Samfylkingarinnar um þessar mundir, meðal annars margir frambærilegir oddvitar flokksins í þeim 19 sveitarfélögum þar sem hann bauð fram í kosningunum 16. maí síðastliðinn.
Í vangaveltum um hver muni taka við varaformennsku í flokknum nú, þegar Guðmundur Árni Stefánsson hefur tilkynnt að hann hyggist stíga til hliðar í kjölfar afhroðs Samfylkingarinnar í Hafnarfirði í fyrrnefndum kosningum, þar sem hann var oddviti, spyr Andrés Magnússon, blaðamaður á Morgunblaðinu hvort þarna sé ekki komið kjörið tækifæri fyrir Dag B. Eggertsson til þess að styrkja stöðu sína innan flokksins.
Aukaleikari án ráðherradóms
Eftir því hefur verið tekið hvernig Kristrún Frostadóttir hefur haldið honum á hliðarlínunni, fyrst með ummælum í kosningabaráttunni 2024 um að hann væri aukaleikari og yrði ekki ráðherraefni flokksins og hins vegar þegar hún gekk fram hjá honum þegar valinn var nýr þingflokksformaður að kosningum loknum.
Bendir Katrín á að Dagur hafi veigamiklu hlutverki að gegna í þinginu, meðal annars í hinu valdamikla embætti varaformanns fjárlaganefndar og einnig sem fulltrúi í utanríkismálanefnd þingsins.
Samtalið þar sem Katrín og Andrés fara yfir hið pólitíska svið að afloknum sveitarstjórnarkosningum má sjá og heyra í heild sinni í spilaranum hér að neðan:
