Páll Vilhjálmsson skrifar:
Karl gerði sér ferð inn í kvennaklefa Sundhallar Reykjavíkur. Þar stóð hann fyrir framan nakta stúlku í sturtu, góndi á hana og strauk sjálfum sér. Tveim árum síðar endurtók sagan sig. Sama stúlkan en annar karl.
Til skamms tíma var nær óhugsandi að karl færi kvennaklefa sundstaða. Hvort kyn hafði sína búningsaðstöðu. Almenn sátt var um fyrirkomulagið enda byggði það á hlutlægum veruleika og samþykktum menningar- og siðferðisgildum.
Reykjavíkurborg ákvað að varpa fyrir róða hlutlægum veruleika og viðurkenndum menningar- og siðferðisgildum. Nýja reglan er að karl geti verið kona í huga sér og eigi þar með sjálfkrafa rétt að fá aðgang að kvennaklefa sundstaða.
Unga stúlkan sagði sögu sína á samfélagsmiðli. Blaðamaður Vísis tekur frásögnina upp og fylgir eftir með spurningum til forstöðumanns Sundhallar Reykjavíkur sem harmar bæði atvikin og kveðst ætla að skerpa á verkferlum.
Verkferlar sundstaða í Reykjavík taka mið af stefnu borgaryfirvalda. Samkvæmt reglum borgarinnar um sundstaði má karl sem segist kona ,,nota klefa í samræmi við kynvitund" og þarf ,,ekki að hafa undirgengist skurðaðgerð til að mega nota tiltekna klefa." Orðið sem notað er af borginni, ,,kynvitund", er félagsfræðilegt. Átt er við ímyndun.
Karlar geta valsað inn í kvennaklefa með æxlunarfærin sem þeir fæddust með. Eina skilyrðið er ímynd karlsins að hann sé kona. Hlutlægur veruleiki er ómarktækur, samkvæmt Reykjavíkurborg, ímyndunaraflið er það sem gildir.
Maðurinn sem gekk inn á stúlkuna í Sundhöll Reykjavíkur fyrir tveim árum hlaut dóm i febrúar síðastliðnum. Samkvæmt frétt Mbl.is var málsvörnin ekki sú að karlinn væri í huga sér kona. En fái reglur Reykjavíkurborgar að standa óbreyttar er ekki spurning hvort heldur hvenær karl arki inn í kvennaklefa til að þjóna lund sinni með þeim rökum að hann sé i huganum kona. Ætli svar Reykjavíkurborgar verði ekki að skylda konur í sundlaugum til meðvirkni með ímyndun karlsins og taka honum sem konu. Fyrirkomulagið má nefna, upp á félagsfræðilega vísu, valdboðinn hlutverkaleik.
ps eftir þrjár vikur eru borgarstjórnarkosningar. Það má kjósa af sér vont yfirvald.