Karl og kona hafa verið handtekin á Írlandi eftir að „háþróuð“ sprengja fannst í bíl þeirra. Hún fannst í rassíu írsku lögreglunnar sem beindist gegn lýðveldissinnum.
„Þetta var gríðarlega mikilvæg handtaka,“ segir Justin Kelly hjá írsku lögreglunni. „Við vitum að fámennur minnihluti lýðveldissinna var ekki sáttur við samkomulagið sem er kennt við föstudaginn langa [Good Friday Agreement],“ bætir hann við.
Samkomulagið, sem er frá árinu 1998, batt enda á langvarandi átök milli írskra þjóðernissinna á Norður-Írlandi, sem vildu sameinast Írlandi, og sambandssinna, sem vildu áfram vera hluti af Bretlandi. Um 3.500 manns létu lífið yfir 30 ára tímabil, margir hverjir í sprengjuárásum.
Samkomulagið fól meðal annars í sér að Írski lýðveldisherinn (IRA) legði niður vopn.