Útlit er fyrir slyddu og snjókomu og hitastig um frostmark á norðaustan- og austanverðu landinu í dag. Gular viðvaranir verða áfram í gildi þar sem aðstæður á fjallvegum gætu orðið varasamar fyrir farartæki á sumardekkjum. Vindur verður á bilinu átta til fimmtán metrar á sekúndu í þessum landshlutum.
Skaplegra veður verður annars staðar. Þó verður rigning á sunnanverðu landinu en norðanvestantil verður að mestu þurrt.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Norðaustan átta til fimmtán metrar á sekúndu. Slydda eða snjókoma norðaustan- og austanlands og hiti 0 til 3 stig. Rigning á sunnanverðu landinu og hiti 5 til 10 stig, en þurrt að mestu norðvestantil. Dregur úr vindi og úrkomu seint í kvöld.
Norðaustan 8-15 á morgun og rigning eða súld með köflum, en úrkomuminna norðvestantil. Hiti 4 til 10 stig.