Leikstjórinn Adam Marcus hefur vakið athygli fyrir óvægin ummæli um leikarann Val Kilmer, rúmu ári eftir andlát hans.
Marcus leikstýrði Kilmer í spennumyndinni Conspiracy árið 2008 og rifjaði samstarfið upp á Threads á dögunum. Þar birti hann mynd af sér og Kilmer á tökustað og kallaði leikarann meðal annars „fífl“.
Hann virtist gera sér grein fyrir því að ummælin kynnu að falla í grýttan farveg, enda lést Kilmer úr lungnabólgu þann 1. apríl 2025 og getur því ekki svarað fyrir sig.
„Til ykkar sem ranghvolfið augunum yfir því að maður eigi ekki að tala illa um látna, þá segi ég: gleymið því,“ skrifaði Marcus og bætti við að hefði Kilmer hagað sér með sama hætti á tökustað núna hefði hann verið „slaufaður á svipstundu“.
Hann gekk enn lengra og sagði Kilmer „verstu manneskju“ sem hann hefði nokkru sinni kynnst. Færslunum hefur nú verið eytt.
Orðspor Kilmer lengi verið til umræðu
Ummælin eru ekki úr lausu lofti gripin því orðspor Kilmer á tökustöðum var lengi til umræðu í Hollywood. Joel Schumacher, sem leikstýrði honum í Batman Forever árið 1995, kallaði hann meðal annars barnalegan og ómögulegan í samstarfi í viðtali við fjölmiðla vestanhafs árið 1996.
John Frankenheimer, sem leikstýrði Kilmer í The Island of Dr. Moreau, sagðist sömuleiðis aldrei ætla að vinna með honum aftur.
Sá ekki eftir neinu
Kilmer ræddi gagnrýnina sjálfur í heimildarmyndinni Val árið 2021.
„Ég hef hagað mér illa. Ég hef verið frakkur. Ég hef hagað mér undarlega í augum sumra,“ sagði Kilmer og bætti við: „Ég neita engu af þessu og sé ekki eftir neinu.“