Tveir gista fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir nóttina og kom ölvun nokkuð við sögu í málaskrá lögreglu.
Í umdæmi lögreglustöðvar 2 var tilkynnt um yfirstandandi innbrot og lýsti tilkynnandi því að fólk væri að reyna að komast inn til hans. Lögregla mætti á vettvang og dró upp rafvarnarvopn og beind að einum aðilanum.
Ekki kom til þess að beita þyrfti vopninu og var vettvangur tryggður og segir lögregla að ekki hafi verið um innbrot að ræða. Að sögn lögreglu reyndist tilkynnandi eftirlýstur og var hann færður til skýrslutöku eftir að búið var að leysa málið á vettvangi.
Í umdæmi lögreglustöðvar 3 var tilkynnt um umferðarslys þar sem ökumaður yfirgaf bifreiðina og fór af vettvangi. Lögregla hafði uppi á honum og virtist hann mjög ölvaður. Hann neitaði þó að blása í áfengismæli og var handtekinn og fluttur í fangaklefa vegna rannsóknar málsins.
Í umdæmi lögreglustöðvar 1 voru tveir ökumenn kærðir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og tveir fyrir of hraðan akstur. Þá var tilkynnt um einstakling sem var ofurölvi og svaf úti á götu í miðbænum. Hann var vakinn og gekk sína leið. Þá var tilkynnt um annan einstakling sem var ofurölvi í miðborginni og var honum ekið heim til sín.