Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar þar sem verður rætt við Önnu Birnu Jónsdóttur, yfirlækni öldrunarlækninga á Landspítalnum.
Lögmaður segir að nýlegur dómur hæstaréttar feli í sér áskorun til dómsmálaráðherra hvað varðar skaðabótalög. Löngu tímabært sé að bregðast við það sé Hæstiréttur að benda stjórnvöldum á.
Nóttin var rólegri í Frakklandi en síðustu nætur en umfangsmikil mótmæli í Evrópu hafa teygt anga sína víða um heimsálfuna.
Nýr Íslandsmeistari var krýndur í bakgarðshlaupi í morgun og nýtt Íslandsmet slegið. Við heyrum hvað meistarinn nýi hafði að segja strax að hlaupinu loknu.
Í íþróttum verður fjallað um Íslandsmeistaratitil Breiðabliks í knattspyrnu kvenna sem og 32-liða úrslitin í bikarkeppninni í körfubolta sem lauk í gærkvöldi.
Allt þetta og meira til í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf.