Þetta kemur fram í tilkynningu þess efnis. Ástæða innköllunarinnar sé vanmerktur ofnæmisvaldur. Varan innihaldi hveiti sem ekki er tilgreint í innihaldslýsingu. Vörurnar séu merktar lotunúmeri frá 26-0744 til 26-1630.
Varan sem um ræðir er Voga ídýfa krydd, bæði í 175 millilítra og 400 millilítra umbúðum.
Viðskiptavinum með ofæmi- eða óþol sé bent á að farga vörunni eða skila henni í þá verslun sem hún var keypt í gegn endurgreiðslu.