Ísraelsher hefur skipað íbúum í úthverfum Beirút að yfirgefa heimili sín, ólsjóst er hvert fólk getur flúið. Íslensk stjórnvöld kalla eftir því að Ísrael virði fullveldi Líbanons og landamæri.
Ísraelsk stjórnvöld hafa skipað íbúum níu annarra bæja í Líbanon á flótta í dag. Frá því átökin hófust í byrjun mars hafa nærri 3.500 verið drepin í árásum Ísraelshers á Líbanon samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum þar.
Ísraelsher segist hafa stöðvað eldflaug í norðurhluta landsins sem hafi verið skotið frá Líbanon fyrr í dag. Þá hafi tvær aðrar eldflaugar fallið til jarðar nærri ísraelskum hersveitum í suðurhluta Líbanon. Ekki hefur verið tilkynnt um mannfall.
Stjórnvöld í Íran segja samningaviðræður um frið við Bandaríkin standa og falla með því að Ísraelsher hætti árásum á Gaza og Líbanon. Einnig hóta Íranar að ráðast á Ísrael ef verði af árásum á höfuðborg Beirút og þá skuli íbúar í norðurhluta Ísrael yfirgefa heimili sín.
Leiðtogar í Evrópu hafa fordæmt framferði ísraelskra stjórnvalda. Ástandið í Líbanon verður tekið fyrir á skyndifundi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í kvöld.
Í skriflegu svari frá utanríkisráðuneyti Íslands til fréttastofu segir að íslensk stjórnvöld harmi áframhaldandi átök í Líbanon og árétti fyrri afstöðu varðandi hernað Ísraela sem og árásir Hezbollah-samtakanna á Ísrael sem hvort tveggja brjóti í bága við skilmála vopnahlés.
Þá lýsa íslensk stjórnvöld áhyggjum af afdrifum óbreyttra borgara, hvetja alla aðila til að virða alþjóðalög og kalla eftir því að Ísrael virði fullveldi Líbanons og landamæri.