Leitin að flökunum og kortlagningin á hafsbotninum í Siglufirði er samstarf rannsóknarseturs Háskóla Íslands á Vestfjörðum, Síldarminjasafnsins á Siglufirði og Erlends Guðmundssonar kafara.
Ragnar Edvardsson, fornleifafræðingur og kafari, segir verkefnið yfirgripsmikið:
„Verkefnið snýst í grófum dráttum um að kortleggja allan Siglufjörð og reyna að fá yfirlit yfir þær minjar sem liggja á hafsbotninum og tengjast sögu Siglufjarðar.“
Erlendur Guðmundsson, einn af þeim sem leiðir verkefnið, er reynslumikill kafari og hafði áður fundið 9 skipsflök í Siglufirði og það tíunda fannst nýverið. Þá hefur fundist brak úr byggingum sem talið er að stórt snjóflóð hafi sópað á haf út árið 1919. Átta fórust í snjóflóðinu og stærsta fiskmjölsverksmiðja landsins eyðilagðist.
Miklar fornleifar finnast í og við Siglufjörð sem var einn stærsti kaupstaður landsins á síldarárunum og þar var mikið líf.
„Nú erum við að skanna botninn og skrásetja flök sem eru hérna og fleiri hafa fundist þannig að þetta er spennandi. Já við erum búnir að finna trúlega eitt nýtt,“ segir Erlendur Guðmundsson, kafari.