Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur kært gæludýraeiganda í Breiðholti fyrir brot á lögum um velferð dýra eftir að hann misþyrmdi gæludýrinu sínu. Brotinu er ekki lýst nánar í dagbók lögreglu þar sem farið er yfir verkefni hennar frá því klukkan 17 í gær.
Í Kópavogi ók maður á hjólandi vegfaranda. Hann var kærður fyrir að virða ekki gangbrautarrétt.
Þá var einn ökumaður í Hafnarfirði kærður fyrir að stinga af frá umferðaróhappi. Engin slys urðu á fólki.