Samtök verslunar og þjónustu hafa kært framgöngu Vinnueftirlitsins sem stöðvaði innflutning kínverskra vinnuvéla þar sem þær stæðust ekki öryggiskröfur.
Vinnueftirlitið hefur síðustu mánuði stöðvað innflutning fjölda vinnuvéla. Tugir véla eru því ýmist fastar í tollinum eða í geymslu hjá eigendum sem hvorki mega nota þær né selja. Stórir gámar af vinnuvélum voru sendir til baka eftir að í ljós kom að vélarnar stóðust ekki samevrópskar öryggiskröfur, í það minnsta að mati Vinnueftirlitsins.
Vélarnar eru flestar með CE-merkingu sem á að tryggja öryggi og gæði. Í sjónvarpsfréttum í gær var sagt frá því að margar þeirra væru keyptar á sölusíðum á netinu, en flestar af kínverskum framleiðendum sem selja vélar sömu gerðar í fjölda Evrópuríkja. Þeir sem fluttu vélarnar inn hafa orðið fyrir miklu fjárhagslegu tjóni.
Eitt þessara félaga er innan Samtaka verslunar og þjónustu. Benedikt S. Benediktsson er framkvæmdastjóri.
„Mér finnst menn hafa gengið svolítið hart fram. Sérstakur vandi í þessu er að þetta er allt stoppað í tolli. Þannig að þeir sem eru að taka á móti vörunum og búnir að greiða fyrir þær geta ekki einu sinni haft vélina undir höndum til að átta sig á hvernig er ástatt. Þannig að tollagreiðslan eða synjun á tollaafgreiðslunni var kærð til fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Svo var krafist förgunar þá þurftum við að kæra þá förgun líka en til annars ráðuneytis og þá fara fram á frestun réttaráhrifa á þessari förgunarkröfu,“ segir Benedikt.
„Mér finnst þetta einkennast af dálitlu offorsi“
Benedikt segir heimild í lögum fyrir því að krefjast förgunar en það sé gert með skömmum fyrirvara og meðalhófs hafi ekki verið gætt.
„Það hljómaði eins og það væri enginn kostur annar í boði en að henda tækinu í ruslið og afskrifa það. Mér finnst þetta einkennast af dálitlu offorsi en svo held ég að Vinnueftirlitið hafi verið að skoða þetta nánar, þannig að það er ekkert útséð með að þetta fari mjög illa, allavega í tilviki þess fyrirtækis sem ég gæti hagsmuna fyrir.“