Judit Polgar, stórmeistari í skák, hefur afþakkað boð forsætisráðherra Ungverjalands um að verða næsti forseti landsins.
Peter Magyar, forsætisráðherra Ungverjalands, skrifaði í færslu á samfélagsmiðlum að Polgar gæti orðið forseti sem sameinaði alla Ungverja og leiðtogi sem þeir gætu verið stoltir af. Magyar kvaðst ætla að ræða við Polgar á morgun um hlutverkið.
Polgar var á toppi styrkleikalista kvenna í skák í 26 ár, allt þar til hún hætti að keppa 2014. Hún tefldi um skeið undir merkjum Taflfélags Reykjavíkur.
Í færslu á samfélagsmiðlum segist Judit Polgar ekki búa yfir þeim styrk sem þurfi til að taka á sig þá sögulegu ábyrgð að sameina sundraða þjóð. Þar af leiðandi geti hún ekki þegið boð Magyars um forsetastólinn.
Velja nýjan forseta innan 30 daga
Fráfarandi forseti Ungverjalands er Tamas Sulyok. Hann undirritaði um helgina viðauka við stjórnarskrá landsins sem batt enda á forsetatíð hans.
Magyar lofaði breytingum á stjórnkerfi Ungverjalands í þingkosningunum í apríl. Hann hefur kallað fyrrum forsetann, Sulyok, og fleiri hátt setta embættismenn leikbrúður Viktors Orbáns. Orbán var forsætisráðherra landsins í alls 20 ár, þar af samfleytt í 16 ár frá 2010-2026.
Forseti ungverska þingsins, Agnes Forsthoffer, hefur tekið við embætti forseta tímabundið. Þingið velur nýjan forseta innan 30 daga.