Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var annar mannanna sem lentu í sjónum úti fyrir Kjalarnesi í gær. Frá þessu greinir hann á Facebook-síðu sinni.
Mennirnir fóru til veiða á kajökum. Þá vildi ekki betur til en svo að þeir lentu í vandræðum með pedalspaðana á öðrum kajakinum og lauk því þannig að báðum kajökum hvolfdi.
„Eftir smá svaml, ca 30 mín., í sjónum og uppi á kili annars kajaksins þangað til 2 björgunarsveitarmenn komu á sæköttum okkur til bjargar,“ skrifar Jón Pétur á Facebook-síðu sinni.
Hann segir björgunarsveitarmenn hafa sýnt af sér mikla fagmennsku og heitir því að styrkja björgunarsveitina með öllum ráðum.
Svamlið í köldum sjónum hafði þó sín áhrif.
„Vorum orðnir kaldari en mig óraði fyrir, mældur líkamshiti 32 gráður. En með öruggum handbrögðum tók það ca 30 mínútur að koma okkur upp í 37 gráður undir hitateppum og með volgt innrennsli í æð.“
Jón Pétur segir þá félaga hafa fengið afbragðs móttökur á bráðamóttökunni og verið útskrifaða um klukkustund eftir komuna þangað.
„Vorum í björgunarvestum og erum ágætlega vanir en slysin gera ekki boð á undan sér. Þá er gott að búa á Íslandi þar sem þrautþjálfað fólk, bæði í sjálfboðavinnu og á spítölunum er til staðar þegar við þurfum á því að halda.“