Hlustendur Léttbylgjunnar munu nú aðeins heyra jólalög þegar þeir stilla inn þar sem útvarpsstöðin er orðin að Jólabylgjunni. Um er að ræða einn af boðberum jóla á Íslandi, líkt og þegar verslanir byrja að selja mandarínur eða þegar IKEA-geitin rís.
Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á Jólabylgjuna:
Bragi Guðmundsson, tónlistarstjóri Bylgjunnar, kynnti þetta í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
„Það eru margir sem eru að spyrja okkur hvenær við byrjum. Það er enginn að hafa samband við okkur og segja: „Ekki byrja svona snemma.“ Nú er bara kominn tími til. Ég meina, græna jólatertan er komin í búðir,“ sagði Bragi.