JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, kennir stríðinu í Íran um tap Repúblikana í þingkosningunum. Hann sagði jafnframt að þeir sem studdu stríðsreksturinn yrðu að horfast í augu við þá staðreynd að þeir gætu hafa glatað völdum í þinginu um ókomin ár vegna ákvörðunarinnar. Þetta sagði hann í færslu á samfélagsmiðlum.
Demókratar tryggðu sér meirihluta í báðum deildum þingsins í kosningunum. Enn er verið að telja atkvæði í tveimur ríkjum þar sem kosið var um sæti í öldungadeildinni. Það eru Alaska og Mississippi. Afar mjótt er á munum í báðum ríkjum og tíma gæti tekið að telja atkvæðin, jafnvel nokkrar vikur.
„Það vita allir hvers vegna við töpuðum“
Í færslunni, sem er nokkuð löng, vísar Vance í orð Donalds Trump sem sagði að stríðið hefði átt þátt í tapinu en það hefði samt verið réttlætanlegt. „Ef menn vilja halda því fram að það hafi verið þess virði, að það að tapa meirihluta í öldungadeildinni næstu sex árin hafi verið þess virði, þá gera menn það. Halda því fram að það hafi verið réttlætanlegur fórnarkostnaður. Menn geta verið sammála eða ósammála, það er heiðarlegt. En það vita allir hvers vegna við töpuðum. Og allar heiðarlegar umræður um hvernig við höldum áfram verða að byrja þar,“ sagði hann.
Með færslunni virðist Vance vera að fjarlægja sig frá þessu stríði og horfa fram til forsetakosninganna 2028. Fjölmiðlar hafa áður greint frá því að hann hafi ekki verið sannfærður um að efna til stríðsins áður en það hófst. Hingað til hefur Vance þótt líklegastur til að vera forsetaefni Repúblíkana í þessum kosningum en hann hefur ekki lýst neinu slíku yfir. Úrslitin eru talin auka þrýsting á hann að greina frá fyrirætlunum sínum fyrr en síðar.