Maður hefur játað að hafa sparkað í lögreglumann og hótað honum og kollega hans en báðir lögreglumennirnir virðast vera kvenkyns. Átti þetta sér stað þegar maðurinn var handtekinn á setustofu Hótel Stracta á Hellu og hélt maðurinn síðan hegðun sinni áfram á leið á lögreglustöðina á Selfossi og þegar þangað var komið. Í dómi Héraðsdóms Suðurlands yfir manninum er vitnað til ýmissa grófra ummæla og hótana sem hann lét falla í garð lögreglukvennanna en hann hótaði annari þeirra meðal annars kynferðislegu ofbeldi.
Játar óhuggulega hegðun á Hellu og Selfossi - „Fokking ét þig litla hóran þín“