Jarðskjálfti varð af stærð 3,0 við Brennisteinsfjöll austan Kleifarvatns klukkan 20:18 í kvöld. Þetta segir í tilkynningu Veðurstofunnar. Borist hafa ábendingar um að skjálftinn hafi fundist í byggð. Nokkrir minni eftirskjálftar hafa mælst.
Í tilkynningunni segir að jarðskjálftar séu algengir á þessu svæði. Skjálftinn í kvöld sé þó sá stærsti sem mælst hefur síðan 18. ágúst 2025. Þá mældist skjálfti af stærð 3,8.
Stærð skjálftans hefur verið uppfærð. Áður var hann sagður af stærð 3,4.