Í kvöldfréttum Sýnar voru rifjaðar upp myndir frá Ásbrú á Keflavíkurflugvelli fyrir sex árum en þá tók bílahönnuðurinn Ari Arnórsson okkur í bíltúr á frumgerðinni. Tuttugu ár eru frá því að hann hóf þróun bílsins og byggði á reynslu Íslendinga af jeppaferðamennsku.
Ofurjeppinn kallast Ísar, er að mestu smíðaður úr áli og óvenju léttur og verður boðinn með umhverfisvænum orkugjöfum. Því er kannski við hæfi að í gömlu Elliðaárstöðinni sé fyrirtækið á bak við Ísar, Jakar ehf., að móta næstu skref.
Þar hittum við Ara með sínu lykilfólki; Kristjönu Kjartansdóttur, framkvæmdastjóra og framleiðsluverkfræðingi, Bjarna Hjartarsyni bílahönnuði og Unnari Bæring Sigurðssyni yfirvélahönnuði. Það er komið að tímamótum.
„Það er búið að selja nóg af bílum til þess að hefja fyrstu framleiðslulotu, sem ætti að vera komin hingað til lands eftir um tólf mánuði,“ segir Ari.
Við sýnum frá því þegar ofurjeppinn var prófaður við Kleifarvatn en íslenskir kaupendur fá fyrstu eintökin.
„Þetta er íslenskt fyrirtæki, markaðssetningin er íslensk, eignarhaldið er íslenskt,“ segir Ari. Jeppinn verður þó framleiddur erlendis.
„Það var allt reynt til þess að geta framleitt hann á Íslandi. Það var bara ekki hægt. Og hann verður framleiddur í Þýskalandi.“
Ari segist frá upphafi hafa miðað alla hönnun við að bíllinn kæmist vandræðalaust í gegnum evrópska vottun.
„Þeir sem eru kaupendur að fyrstu bílunum, þeir taka þátt í að reyna að finna alla ágalla sem mögulegt er.“
Hann vonast til að björgunarsveitir verði með í fyrsta pakkanum.
„Björgunarsveitir á Íslandi komu ríkulega að því að hanna þennan bíl í upphafi.“
Í fyrstu lotu verða framleiddir tíu til fimmtán bílar.
„Svo heldur framleiðslan áfram eftir það, bara eftir kaupendum.“
Stóri markaðurinn er úti í heimi.
„Það eru slökkvilið, það eru námafyrirtæki, það er safarímarkaðurinn.“
Og raunar allir þeir sem þurfa að aka um vegleysur, en jeppinn verður skilgreindur sem smárúta fyrir fleiri en tíu farþega og með allt að 23 sætum.
Kaupandi fyrsta bílsins er eitt elsta jeppafyrirtæki Íslands, Mountain Taxi.
„Ég er búinn að fylgjast náið með þessu verkefni alveg frá upphafi og komið að alls konar málum með Ara í kringum þetta og er gríðarlega spenntur að fá þetta tæki, sem verður bylting, miklu léttara heldur en þessir bílar eru í dag,“ segir Kristján G. Kristjánsson, eigandi Mountain Taxi.
En hvað skyldi jeppinn svo kosta?
Svar Ara: Án vasks milli 40 og 50 milljónir króna.
Hér má sjá tryllitækið í sjónvarpsfrétt Sýnar: