Melsungen er Evrópudeildarmeistari karla í handbolta eftir dramatískan sigur gegn Kiel í úrslitaleik í Hamburg í Þýskalandi í dag.
Leiknum lauk með eins marks sigri Melsungen, 24:23, en Eric Johansson skoraði sigurmarkið þegar fimmtán sekúndur voru til leiksloka.
Arnar Freyr Arnarsson skoraði tvö mörk fyrir Melsungen í leiknum en Reynir Þór Stefánsson komst ekki á blað hjá Melsungen.
Þetta er í fyrsta sinn sem félagið fagnar sigri í Evrópukeppni en liðið náði sínum besta árangri í þýsku 1. deildinni frá upphafi í fyrra þegar það hafnaði í þriðja sæti deildarinnar. Þá hefur félagið þrívegis hafnað í öðru sæti þýsku bikarkeppninnar.