Guðlaugur Victor Pálsson og félagar í Horsens tryggðu sér sæti í dönsku úrvalsdeildinni eftir 1:0-sigur gegn Kolding í dag.
Horsens hafnar í öðru sæti deildarinnar með 54 stig, sex stigum á eftir Lyngby sem endar á toppnum og fer sömuleiðis upp í dönsku úrvalsdeildina. Kolding endar í sjötta sæti með 38 stig.
Kristian Kirkegaard skoraði sigurmark Horsens á 55. mínútu. Guðlaugur Victor lék allan leikinn í vörn liðsins.
Í liði Kolding lék Ari Leifsson allan leikinn í hjarta varnarinnar.