Það var heldur betur líf og fjör á Hlégarðstúni um síðustu helgi þegar Íslandsmeistaramót í prikhestum og mávagargi fór fram á bæjarhátíðinni Í túninu heima. Keppnin var hluti af Kjúllanum og ljóst að keppnin var hörð. Í prikhestakeppninni var keppt í bæði stíl og hraða og voru dómararnir Mosfellingarnir Ragnheiður Ríkharðsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri, Ásgeir Jónsson, formaður Aftureldingar, og Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri. Steindi Jr. hélt um taumana sem kynnir keppninnar.
Íslandsmeistari í prikhestum á leið á heimsmeistaramót