Héraðssaksóknari hefur ákært litháeskan mann, Irmantas Bartosevicius, fyrir fíknefnabrot og peningaþvætti, og segir í ákæru að brotin hafi verið framin sem liður í skipulögðum brotasamtökum á árunum 2024 til 2026. Irmantas, sem er fæddur árið 1988, dvelst á Litla-Hrauni. Hann er sagður hafa millifært tæplega tvær og hálfa milljón króna af bankareikningi sínum inn á bankareikning konu sem í kjölfarið millifærði peningana inn á bankareikning karlmanns, eða þeir voru teknir út í hraðbönkum erlendis, að því er segir í ákæru.
Irmantas ákærður fyrir þaulskipulögð brot