Íris Helga handtekin grunuð um umsáturseinelti í öðru máli
Íris Helga Jónatansdóttir bar við minnisleysi og sagðist ekki kannast við netfang í tölvu sinni. Fyrir dómi kom fram að hún hefði nýverið verið handtekin vegna gruns um umsáturseinelti í óskyldu máli. Hún viðurkenndi að hafa ranglega kært mann fyrir kynferðisofbeldi og sent tilhæfulausa kvörtun til barnaverndar.
Fyrsti dagurinn í aðalmeðferð í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur, sem er ákærð fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gegn níu einstaklingum, einkenndist af minnisleysi og óvæntum útskýringum um samantekna heift gagnvart henni sjálfri. Hún upplýsti sjálf óvænt í lok skýrslutökunnar að hún hefði verið handtekin fyrir stuttu og því haldið fram að hún væri að ofsækja náinn fjölskyldumeðlim. Hún útskýrði ekki málavexti frekar en virtist reið vegna atviksins sem hún tengir við ofsóknir lögreglu gegn sér.
Tengdi tölvu Írisar við netfang eltihrellis
Saksóknari sýndi í málflutningi sínum fram á að sama netfang og var notað til þess að hrella tvo þolendur hafi sést á ljósmynd sem var tekin af tölvu Írisar Helgu. Netfangið sem ætlað er að tilheyri henni var notað til þess að senda pósta á skóla dóttur Sölva Guðmundarsonar og því haldið fram að þau væru viðriðin fíkniefni og ofneyslu áfengis auk annarra ásakana.