Liðsmenn íranska fótboltalandsliðsins eru komnir með vegabréfsáritun til að ferðast til Bandaríkjanna. Frá þessu greinir Tom Barrack, sendiherra Bandaríkjanna í Tyrklandi.
Þetta þýðir að liðið getur keppt á heimsmeistaramótinu í fótbolta sem hefst í næstu viku. Fyrsti leikur liðsins á mótinu er gegn Nýja-Sjálandi. Liðin mætast 16. júní í Los Angeles.
Proud of our outstanding team at the U.S. Embassy in Ankara for their work processing visas for Iran’s national football team on their road to the @FIFAWorldCup in the United States.
— Ambassador Tom Barrack (@USAMBTurkiye) June 5, 2026
Sports transcends borders, and we look forward to welcoming competitors and fans from around the… https://t.co/KpFUCFcvZV
„Ég er stoltur af vinnu okkar frábæra teymis í sendiráði Bandaríkjanna í Ankara við að afgreiðslu vegabréfsáritana fyrir íranska fótboltalandsliðið sem er á leið á heimsmeistaramótið í Bandaríkjunum,“ ritar Barrack í færslu á samfélagsmiðlinum X. „Íþróttir eru hafnar yfir landamæri og við hlökkum til að taka á móti keppendum og aðdáendum hvaðanæva að úr heiminum.“
Þrátt fyrir að allir leikir íranska liðsins í riðlakeppni fari fram í Bandaríkjunum heldur liðið til í Mexíkó meðan á mótinu stendur. Búist er við því að liðið ferðist þangað á sunnudag.
Æfingabúðir liðsins áttu upphaflega að vera í Bandaríkjunum. Þær voru færðar til Mexíkó vegna spennu í samskiptum Írans og Bandaríkjanna eftir að stríðið í Mið-Austurlöndum hófst.