Íransher gerði árásir á herstöðvar Bandaríkjanna í Írak og Jórdaníu í nótt og hótar harðari atlögum vegna eldflaugaárása Bandaríkjanna í gær og fyrradag. Minnst sjö eru sögð hafa verið drepin í þremur árásum Bandaríkjahers á Khuzestan-hérað, suðvestanvert í landinu í gær.
Ríkisrekna fréttastöðin IRNA hefur eftir héraðsyfirvöldum að minnst átta til viðbótar hafi særst í árásunum. Íranski Rauði hálfmáninn greindi frá því í gær að fjórir, þar af eitt barn, hefðu týnt lífi og fimmtíu særst í árás Bandaríkjahers á brúðkaupsveislu í Sirik-héraði.