Frá þessu greinir Times of Israel en Ísraelsher greindi einnig frá þessu í yfirlýsingu um klukkan 19 að íslenskum tíma. Herinn segist hafa skotið niður allar skotflaugarnar í fyrstu bylgju árásanna, en fleiri eldflaugar séu á leiðinni.
Fyrr í dag hafði ísraelski herinn sagst vera að búa sig undir eldflaugaárás frá Íran á komandi klukkustundum, í kjölfar árásar sem Ísraelsmenn höfðu gert í líbönsku höfuðborginni Beirút fyrr í dag.
Muni ekki umbera brot á vopnahléi
Times of Israel skrifa nú að loftvarnarsírenur ómi víða um Ísrael. Þar segir að engar fregnir hafi borist af mannsfalli eða áverkum á fólki vegna árásanna.
Þetta er fyrsta árás Írana á Ísrael frá því að vopnahlé tók gildi 10. apríl.
Íranski byltingarvörðurinn hefur birt yfirlýsingu þar sem fram kemur að ef Ísraelar hætti ekki að ráðast á Líbanon, muni þeir gera stærri áras.
Mohzen Rzaee, fyrrverandi yfirmaður byltingarvarðarins og ráðgjafi æðstaklerksins, skrifar á X að Íranir hafi ítrekað lýst því yfir að þeir myndu ekki umbera brot á vopnahléi eða árásir á Líbanon. „Í kvöld fengu árásaraðilarnir sitt svar. Þetta er viðvörun til þeirra um að hætta sínum illgjörðum; sérhver ný aðgerð mun mæta harðari viðbrögðum og meiri kostnaði,“ skrifar hann.
Þetta myndband sem var tekið í íran sýnir eldflaugum skotið að Ísrael.
Multiple Iranian ballistic missiles seen flying outbound from Central Iran towards Israel tonight. pic.twitter.com/RynlJ04Qec
— OSINTtechnical (@Osinttechnical) June 7, 2026
Íranska höfuðborgin „mun brenna“
Ísraelsmenn heita hefndum.
„Í kvöld mun Teheran brenna,“ skrifar Ben-Gvir, þjóðaröryggisráðherra Ísraels, á X og vísar þar til höfuðborgar Írans.
Á miðvikudag höfðu borist af því fréttir að stjórnvöld í Ísrael og Líbanon hefðu samþykkt að koma á vopnahléi í nokkrum viðræðulotum. Samkvæmt fyrsta samkomulagi þurfti Hezbollah, sem stýrir stórum hluta Suður-Líbanons, að hætta öllum árásum á Ísrael og flytja alla liðsmenn sína frá suðurhluta Líbanons. Þessu höfnuðu Hezbollah.
Fréttin hefur verið uppfærð.