Forseti Írans, Masoud Pezeshkian, þakkaði Vladimír Pútín Rússlandsforseta í dag fyrir stuðning síðustu mánuði í stríðinu í Mið-Austurlöndum. Þeir hittust á leiðtogafundi Sjanghæ-ríkjavettvangsins í Bishkek, höfuðborg Kirgistan. Þetta var fyrsti fundur forsetanna síðan Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran í lok febrúar.
Íran og Rússland hafa átt í vopnaviðskiptum og síðan Rússar hófu allsherjarinnrás í Úkraínu 2022 hafa þeir eflt samstarfið við Írana enn frekar. „Við metum og þökkum þér fyrir afstöðuna á öllum stigum, bæði þann tíma sem átök hafa staðið og á rólegri tímum þegar Bandaríkin hafa beitt okkur refsiaðgerðum, bæði innan Sameinuðu þjóðanna og á alþjóðlegum vettvangi,“ sagði Pezeshkian við Pútín í morgun.
Fundur þeirra var haldinn á leiðtogafundi Sjanghæ-ríkjavettvangsins (e. Shanghai Cooperation Organisation) sem stendur í Kirgistan. Tíu ríki eiga aðild að vettvanginum: Rússland, Kína, Belarús, Íran, Kasakstan, Kirgistan, Pakistan, Rússland, Tajikistan og Úsbekistan.
Narendra Modi forsætisráðherra Indlands fundaði með Pútín í gær og hvatti hann til að beita sér fyrir stríðslokum í Úkraínu. „Við þurfum að hörfa frá endalausu stríði til stríðsloka,“ sagði Modi. Slíkt væri nauðsynlegt fyrir mannkyn. Indland hefur lýst yfir hlutleysi gagnvart allsherjarinnrásinni og haldið áfram viðskiptum við Rússland, þrátt fyrir hernaðinn.
Rússlandsher drap tólf manns og særði 21 í árásum á Kyiv og nágrenni í nótt.