Iliana Iotova sigraði í seinni umferð forsetakosninganna í Búlgaríu í gær og er þar með Iotova er fyrsti lýðræðislega kjörni kvenforseti Búlgaríu.
Hún vill eiga í nánari samskiptum við Rússland og er mótfallin hernaðaraðstoð Evrópulanda við Úkraínu.
Iotova hefur raunar gegnt embætti forseta síðan í janúar á þessu ári en hún var áður varaforseti. Hún tók við embættinu þegar forveri hennar, Rumen Radev, steig til hliðar til að gegna þingmennsku. Nú hefur þjóðin hins vegar kosið hana til að leiða landið áfram.
Niðurstöður afgerandi í seinni umferð
Hvorugum forsetaframbjóðandanum tókst að tryggja sér meirihluta í fyrri umferð kosninganna. Þá fékk Iotova 35% atkvæða en mótframbjóðandi hennar, hagfræðingurinn Andrey Gyurov, 32%. Kjörsókn var sögulega dræm, en aðeins 22% þjóðarinnar greiddu atkvæði.
Í seinni umferðinni var sigur Iotovu meira afgerandi, en hún fékk 58% atkvæðanna og Gyurov 38%. Kosningaþátttaka var eilítið hærri eða tæp 30%.