Mjólkursamlag KS hefur innkallað nokkrar framleiðslulotur af Voga ídýfu með kryddi. Í innihaldslýsingu kemur ekki fram að ídýfan innihaldi hveiti sem er ofnæmisvaldur.
Innköllunin nær yfir allar dósir af Voga ídýfu með kryddi sem eru merktar með best fyrir dagsetningar á bilinu 28. júlí til 30. október. Lotunúmerin eru 26-0744 til og með 26-1630.
Fyrirtækið hvetur fólk sem hefur ofnæmi eða óþol fyrir hveiti til að henda vörunni eða skila henni í búð þar sem hún var keypt og fá endurgreitt.