Inga þreytt

Inga Sæland
Mynd: Stjórnarráðið/Bernharð
Sýnileg þreyta er komin í Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og formann Flokks fólksins, að sögn þeirra sem þekkja til í herbúðum flokksins.
Talið er að lélegur árangur flokksins í borgarstjórnarkosningum hafi tekið mikið á Ingu og hún telur flokkinn hafa staðið sig vel í borgarstjórn undanfarin átta ár en flokkurinn náði ekki neinum fulltrúa inn í síðustu kosningum inn í borgarstjórn. Þá hefur fylgið í Alþingiskönnunum ekki verið upp á marga fiska að undanförnu og lítið gert úr afrekum flokksins í samfélaginu.
Einhverjir telja mögulegt að Inga muni ekki bjóða sig fram í næstu Alþingiskosningum en hún verður 69 ára gömul þegar núverandi kjörtímabili lýkur. Hvað það þýðir fyrir Flokk fólksins er hins vegar alveg óvíst ...