Íhugar að láta handtaka Netanyahu
Hann á heima í Haag, segir Zoran Mamdami, borgarstjóri New York, um forsætisráðherra Ísraels sem stefnir á fund hjá Sameinuðu þjóðunum.
Zohran Mamdani, borgarstjóri New York, er í viðræðum um hvort reyna eigi að handtaka Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, á komandi leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna, að því er hann sagði hann í viðtali um helgina. Hörð viðbrögð bárust frá stuðningsmönnum Netanyahu.
„Ég tel að Netanyahu forsætisráðherra eigi heima í Haag,“ sagði Mamdani við The New York Times. „Hann er stríðsglæpamaður sem hefur verið ákærður af Alþjóðlega sakamáladómstólnum.“
Mamdani, sem er vinstrisinnaður og hefur kallað Ísrael „aðskilnaðarstjórn“, bætti við: „Þetta er skoðun sem margir deila, einfaldlega vegna þess sem aðgerðir hans hafa leitt af sér á undanförnum árum.“
Mamdani viðurkenndi að hann væri ekki viss um hvort hann hefði vald til að skipa lögreglunni í New York að handtaka erlendan leiðtoga en ræðir málið við lögfræðiteymi borgarinnar.
„Hvað sem lögin leyfa mér að gera í New York-borg, það munum við gera,“ sagði hann.
Allsherjarþing …