Icelandair tapaði milljarði en Bogi fékk bónusgreiðslu

Milljóna bónusgreiðslur til forstjóra stórfyrirtækja hafa vakið athygli á ný eftir umfjöllun Heimildarinnar um launakjör stjórnenda skráðra félaga. Þar kemur fram að gögn bendi ekki til þess að skýr tenging sé milli launa forstjóra og árangurs fyrirtækjanna sem þeir stýra, hvort sem litið er til uppgjöra eða þróunar hlutabréfaverðs.
Tekin er sérstaklega fyrir staða hjá Icelandair þar sem laun Boga Nils Bogasonar forstjóra jukust um rúm 18 prósent á síðasta ári og námu um 85 milljónum króna. Þetta gerðist þrátt fyrir að félagið hafi tapað um 1,2 milljörðum króna og markaðsvirði þess lækkað um 38 prósent á sama tíma.
Hluti tekna Boga var árangurstengd greiðsla upp á níu milljónir króna. Fulltrúi félagsins segir þó að samanburðurinn gefi ranga mynd þar sem laun forstjórans séu greidd í íslenskum krónum en uppgjör félagsins birt í Bandaríkjadölum. Samkvæmt svörum félagsins hafi laun Boga í raun aðeins hækkað um 6,1 prósent milli ára þegar miðað er við íslenskar krónur.
Í svari félagsins kemur jafnframt fram að stjórn og starfskjaranefnd ákveði laun og árangurstengdar greiðslur á grundvelli fyrirfram skilgreindra markmiða. Þar geti verið um að ræða fjárhagsleg, rekstrarleg eða stefnumótandi markmið sem miði bæði að daglegum rekstri og langtímastyrkingu félagsins.
Rekstur Icelandair hefur hins vegar verið þungur um árabil og félagið ítrekað skilað tapi.