Hreyfing er komin á kjaraviðræður Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA). Samningsaðilar hittust í karphúsinu klukkan 19 í gærkvöld. Fundi þeirra lauk á tíunda tímanum.
Á fundinum kynnti Icelandair tillögur sem félagið hefur unnið að á síðustu dögum.
Vísir hefur eftir Ástráði Haraldssyni ríkissáttasemjara að FÍA muni kynna sér tillögurnar á næstu dögum. Hann bindi vonir við að samninganefnd félagsins leggi fram tillögur eða gagntilboð þegar þeirri vinnu er lokið.
Ástráður segir að nokkuð sé spunnið í tillögur Icelandair en í samtali við Morgunblaðið lýsir hann þeim sem „konkret“.
Hann sagði í samtali við fréttastofu í gær að einkum væri tekist á um hvíldartíma, vinnufyrirkomulag og svokallaða blautleigusamninga. Þeir samningar fela í sér að flugfélag geti fengið annað erlent flugfélag til að fljúga fyrir sig. Icelandair hefur hingað til ekki haft heimild fyrir slíkum samningum en vill breyta því.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, sagði í kvöldfréttum RÚV mikilvægt að ná að klára samninga. Það væri ekki aðeins mikilvægt fyrir flugfélagið, heldur hagkerfið og þjóðina sömuleiðis.