Grunur er um að bíll sem hafnaði utan vegar við Krýsuvikurveg með þeim afleiðingum að þrjú ungmenni létust, hafi verið ekið á yfir 220 kilómetra hraða. Íbúar á Völlunum hafa lengi varað við hraðakstri á veginum. Mörg ungmenni urðu vitni að slysinu.
Rannsókn lögreglunnar á slysinu er á skammt á veg komin. Bíllinn hafnaði utan vegar, lenti á klett sem stendur utan vegar við gatnamót Krýsuvíkurvegar og Leiðarendavegar og varð við það alelda. Tvær stúlkur, 16 og 18 ára, og 21 árs karlmaður létust í slysinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu var eldri stúlkan írsk en búsett á Íslandi.
Á yfir 220 kílómetra hraða
Hraðakstur er meðal þess sem lögreglan skoðar, að sögn Sævars Guðmundssonar aðalvarðstjóra. Grunur er um að bílnum, sem var af gerðinni BMW, hafi verið ekið á yfir 220 kílómetra hraða þegar slysið varð. Fleiri ungmenni á nokkrum bílum voru á staðnum. Talið er þau hafi verið að stunda hraðaakstur á veginum. Nokkur ungmenni urðu vitni að slysinu. Rætt verður við þau á næstu dögum.
Myndband úr appinu Life360 sem sýnir hraða bílsins áður en hann hafnar utan vegar er í dreifingu. Appið sýnir hraða og staðsetningu bíla í rauntíma. Þá hefur myndböndum af vettvangi slyssins, þar sem sjá má bílinn í ljósum logum, einnig verið deilt manna á milli á samfélagsmiðlum. Lögreglan hefur þetta til skoðunar.
Hraðakstur algengur vandi
Íbúi sem býr á Völlunum í grennd við slysstaðinn segir að hraðaakstur hafi verið stundaður á Krýsuvikurvegi lengi. Hann vill ekki koma fram undir nafni. Hann segir íbúa ítrekað hafa bent lögreglu á vandann og sendi sjálfur ábendingu til lögreglunnar í sumar þar sem hann kallaði eftir því að eitthvað yrði að gert áður en alvarlegt slys yrði á veginum. Hann segir íbúa hverfisins í áfalli. Hafnfirðingar sem fréttastofa hefur rætt við segja hraðaakstur ungmenna á Krýsuvíkurvegi hafa verið vandamál í tugi ára.
Sævar segir lögreglu oft fá ábendingar um hraðaakstur ungmenna. Hann sé stundaður um allt höfuðborgarsvæðið og einskorðist ekki við Krýsuvikurveg. Hann segir lögreglu hafa fengið ábendingar um að hraðaakstur sé nú í tísku á meðal ungmenna.
Minningarstundir í dag
Minningarstund til minningar um Arndísi Höllu Guðlaugsdóttur, 16 ára stúlkuna sem lést í slysinu, verður haldin í Lágafellskirkju í dag kl. 17:30. Þá verður bænastund til minningar um Benjamin Guðmundsson sem einnig léstí slysinu í Háteigskirkju klukkan 18.