Jón Magnússon skrifar:
Utanríkisstefna ríkisstjórnarinnar, hefur borið þann árangur að málsmetandi stjórnendur í Bandaríkjunum sjá ekki ástæðu til að ræða við utanríkisráðherra en senda varamenn í sinn stað.
Síðasti fáránleiki lánlausrar ríkisstjórnar Íslands til að vekja athygli á eigin ömurleika, var að slást í för með gjörspilltri ríkisstjórn Suður Afríku í málssókn gegn Ísrael sama dag og helsta bandalagsþjóð Íslands, Bandaríkin ásamt Ísrael neyddust til að herja á Íran til að koma í veg fyrir frekari hermdarverk af hálfu þursastjórnar klerkana þar í landi.
Flott kveðja það og Íslandi til ævarandi skammar. Með þessu sagði ríkisstjórnin sig í sveit með tveimur vinstri sinnuðustu ríkisstjórnum Evrópu auk Íran. Flott kompaní það.
Auk þess fer ríkisstjórnin með rangt mál þegar hún vísar til þingsályktunartillögu nr. 1/154 frá 9.11.2023, sem heimild fyrir sig til að fara í slagtog með Suður Afríku og Íran til að reka mál fyrir Alþjóðadómstólnum gegn Ísrael. Enga heimild er þar að finna.
Þál.1/154 er í ætt við hugmyndafræði dýranna í Hálsaskógi í samnefndri sögu, um að öll dýrin í skóginum eigi að vera vinir en vísar ekki til réttarhalda eða málssóknar.
Þál. nr 1/154 veitir engar heimildir til þeirrar vegferðar sem ríkisstjórnin hefur nú hafið og vísar eingöngu til rannsóknar en ekki ákæru eða aðildar að dómsmálum. Dapurlegt að ríkisstjórn skuli leggjast svo lágt að ljúga því til að þessi vegferð sé í samræmi við vilja Alþingis skv. þál fyrir síðustu kosningar.
Alþingi getur ekki sætt sig við annað virðingar sinnar vegna en að taka þetta mál upp og fordæma ríkisstjórnina fyrir að vísa ranglega til vilja Alþingis þegar sá vilji liggur ekki fyrir.
En þá er spurningin hver heimilaði ríkisstjórninni að blanda sér í kærumál sem Suður Afríka höfðaði gegn Ísrael. Það liggur nefnilega engin heimild fyrir til þessara aðgerða frá Alþingi.
Þorgerður Katrín og ríkisstjórnin sitja því uppi með fáránleikann í þessu máli eins og svo mörgum öðrum, en því miður dregur það ljótan dálk á eftir sér í alþjóðasamskiptum Íslands við helstu vinaþjóðir okkar frá lýðveldisstofnun.