Hvassviðri er á Holtavörðuheiði þar sem vindur mælist 15 metrar á sekúndu og vindhviður ná allt að 21 metra á sekúndu.
Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni geta aðstæður verið varasamar fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind, svo sem bíla með aftanívagna, en venjulegir fólksbílar ættu almennt ekki að lenda í vandræðum.
Vonast er til að dragi úr vindi um eða eftir klukkan átta í kvöld, ef veðurspár ganga eftir.
Þá gætu einnig orðið snarpar vindhviður á Öxnadalsheiði í kvöld.
Veðurhorfur fyrir morgundaginn góðar
„Á Norðvesturlandi er gul veðurviðvörun í gildi og hún beinist fyrst og fremst að ökutækjum sem taka á sig mikinn vind, svo sem þeim sem eru með aftanívagna,“ segir fulltrúi Vegagerðarinnar.
Hann bendir jafnframt á að veðurhorfur fyrir morgundaginn séu góðar, að minnsta kosti hvað vind varðar.